Persónuverndarstefna Nýrrar erfðaskrár

Síðast uppfært 1. nóvember 2026

1. Ábyrgð og samskipti

Ný erfðaskrá veitir þjónustu við gerð erfðaskráa á nyerfdaskra.is. Reksturinn er í eigin nafni Bóasar Sigurjónssonar, sem er ábyrgðaraðili að vinnslu persónuupplýsinga vegna þjónustunnar.

Bóas Sigurjónsson
Netfang: boas@nyerfdaskra.is

Fyrirspurnum um meðferð persónuupplýsinga og beiðnum vegna réttinda einstaklinga má beina á framangreint netfang.

2. Upplýsingar sem unnið er með

Unnið er með upplýsingar sem viðskiptavinir veita í spurningalista á vefnum og í samskiptum vegna þjónustunnar. Þar geta meðal annars verið nöfn, kennitölur, samskiptaupplýsingar, fjölskylduaðstæður, upplýsingar um eignir og skuldir, óskir um ráðstöfun arfs og efni erfðaskráa.

Viðskiptavinir kunna einnig að veita upplýsingar um maka, börn, erfingja og aðra sem fyrirhugaðar ráðstafanir varða. Þær upplýsingar berast frá viðskiptavini og eru aðeins unnar að því marki sem nauðsynlegt er vegna verkefnisins.

Viðskiptavinir eru beðnir um að senda ekki óþarfar persónuupplýsingar eða heilsufarsupplýsingar í spurningalistanum. Ef sérstakar aðstæður kalla á frekari upplýsingar er metið sérstaklega hvaða gagna er þörf og á hvaða grundvelli má vinna með þau.

3. Tilgangur og grundvöllur vinnslu

Upplýsingar um viðskiptavin eru notaðar til að afgreiða beiðni hans, eiga samskipti og semja og afhenda erfðaskrá. Vinnslan byggist á nauðsyn vegna samnings eða ráðstafana að beiðni hans áður en samningur er gerður. Án nauðsynlegra upplýsinga getur verið ómögulegt að veita þjónustuna.

Vinnsla nauðsynlegra upplýsinga um aðra einstaklinga og takmörkuð varðveisla vegna síðari aðstoðar byggist á lögmætum hagsmunum af að framkvæma óskir viðskiptavinar og aðstoða hann við breytingar. Sú vinnsla er háð mati á nauðsyn og réttindum þeirra sem upplýsingarnar varða.

Persónuupplýsingar eru ekki notaðar til markaðssetningar. Gervigreind er ekki notuð við vinnslu þeirra og ekki fer fram sjálfvirk ákvarðanataka eða gerð persónusniða.

4. Geymsla, aðgangur og þjónustuaðilar

Hostinger annast hýsingu vefsins, móttöku svara úr spurningalista og tölvupóstþjónustu. Gögn vegna verkefna eru geymd hjá Hostinger. Eftir að verkefni lýkur eru aðeins netfang viðskiptavinar og eintak af endanlegri erfðaskrá varðveitt vegna síðari aðstoðar, eins og nánar greinir í 5. kafla.

Bóas hefur einn aðgang að gögnunum við afgreiðslu verkefna. Hostinger og undirvinnsluaðilar þess kunna jafnframt að vinna með gögn vegna reksturs þjónustunnar samkvæmt viðeigandi vinnsluskilmálum. Persónuupplýsingar eru ekki seldar. Miðlun til annarra á sér aðeins stað samkvæmt fyrirmælum viðskiptavinar, á öðrum lögmætum grundvelli eða vegna lagaskyldu.

5. Varðveisla gagna

Á meðan verkefni er í vinnslu eru nauðsynlegar upplýsingar, svör úr spurningalista, drög og samskipti varðveitt til að ljúka því.

Að verkefni loknu eru aðeins netfang viðskiptavinar og eintak af endanlegri erfðaskrá varðveitt til að geta aðstoðað við síðari breytingar. Öðrum verkefnisgögnum, þar á meðal svörum úr spurningalista, eldri drögum og öðrum tölvupóstsamskiptum, er eytt úr virkri geymslu að lokinni afgreiðslu. Varðveitt eintak erfðaskrár inniheldur þær persónuupplýsingar sem koma fram í skjalinu sjálfu.

Þörf fyrir áframhaldandi varðveislu er endurmetin árlega. Við matið er litið til þess hvort erfðaskráin sé enn viðeigandi grundvöllur síðari aðstoðar, hvort ný erfðaskrá hafi leyst hana af hólmi og hvort viðskiptavinur hafi óskað eftir eyðingu. Netfanginu og eintaki erfðaskrárinnar er eytt þegar ekki er lengur þörf á þeim í þessum tilgangi. Varðveislan felur ekki í sér vörslu undirritaðs frumrits.

6. Réttindi einstaklinga

Einstaklingar geta, að uppfylltum lagaskilyrðum, óskað eftir aðgangi, leiðréttingu, eyðingu, takmörkun vinnslu og flutningi eigin gagna. Réttur er til að andmæla vinnslu sem byggist á lögmætum hagsmunum. Réttindin sæta lögbundnum takmörkunum, meðal annars vegna réttinda annarra.

Beiðnum er almennt svarað innan mánaðar. Nauðsynlegt getur verið að staðfesta deili á beiðanda. Kvörtunum má beina til Persónuverndar; upplýsingar eru á personuvernd.is.

7. Tæknigögn, vafrakökur og vefmælingar

Ný erfðaskrá hefur ekki sett upp eigin vafrakökur, auglýsingatól eða rakningarkóða, svo sem Google Analytics eða Meta Pixel.

Við rekstur hýsingarþjónustu getur Hostinger skráð tæknilegar upplýsingar um heimsóknir, svo sem IP-tölur, tímasetningu beiðna, umbeðnar síður eða skrár, tegund vafra og tækis og villur í afgreiðslu beiðna. Slík gögn eru notuð vegna reksturs, öryggis og bilanagreiningar þjónustunnar. Grundvöllur nauðsynlegrar tæknivinnslu á vegum Nýrrar erfðaskrár eru lögmætir hagsmunir af öruggum og áreiðanlegum rekstri vefsins.

Samkvæmt upplýsingum Hostinger safnar innbyggð yfirlitstölfræði vefsíðugerðar þess gögnum í gegnum Cloudflare um fjölda heimsókna og einstakra gesta, lönd og tegundir tækja. Sú virkni notar ekki vafrakökur. Ný erfðaskrá hefur ekki tengt við hana sérstök auglýsinga- eða rakningartól.

Nánari upplýsingar um meðferð gagna hjá Hostinger eru í persónuverndarstefnu Hostinger og vinnsluskilmálum þess.

8. Breytingar

Stefnan er endurskoðuð ef meðferð persónuupplýsinga breytist. Nýjasta útgáfa er birt á vefnum og dagsetning uppfærð. Verði verulegar breytingar sem varða þegar safnaðar upplýsingar er viðkomandi veitt viðeigandi fræðsla áður en ný vinnsla hefst.