Um Nýja erfðaskrá

Ný erfðaskrá býður upp á faglega unnar erfðaskrár í samræmi við íslensk erfðalög. Með skýru ferli og föstu verði færðu trausta og vandaða þjónustu við gerð erfðaskrár.

Um Okkur

Stofnun á nyerfdaskra.is

Ný erfðaskrá var stofnuð með það að markmiði að gera gerð erfðaskrár einfaldari, skýrari og aðgengilegri fyrir almenning. Markmiðið er að bjóða faglega lögfræðiþjónustu á föstu verði, án þess að viðskiptavinir þurfi að greiða ófyrirsjáanleg tímagjöld. Með einföldu ferli og föstu verði gerum við þessa mikilvægu þjónustu aðgengilegri án þess að slaka á fagmennsku eða gæðum.

Bóas Sigurjónsson er stofnandi og umsjónarmaður Nýrrar erfðaskrár. Hann er útskrifaður lögfræðingur frá Háskólanum í Reykjavík og mikill áhugamaður um erfðarétt. Samhliða rekstri Nýrrar erfðaskrár stundar hann meistaranám í lögfræði við Háskólann í Reykjavík.